Hlaða niður

Smelltu hér til að ná í KnitBird
Adobe AIR uppsetningarskrá
1.9 mb - Windows, Mac og Linux

Kaupa - $30.00 USD

Smelltu hér til að kaupa
Verslaðu á öruggan hátt með PayPal

Um forritið

KnitBird er teikniforrit fyrir alla sem prjóna. Forritið er vel búið tólum til að auðvelda þér að virkja sköpunarkraftinn til að hanna fallega prjónaflík, hvort sem þú notar myndir úr tölvunni eða hugmyndaflugið.

 

Öll algengustu táknin

KnitBird inniheldur öll algengustu táknin sem þú þekkir úr prjónauppskriftum. Áður en þú dreifir uppskrifinni þinni getur þú skrifað eigin skýringu við hvert tákn sem þú notar.

 


Breyttu myndum í munstur

Þú getur opnað myndir beint úr tölvunni og breytt þeim í prjónamunstur.

 


Vistaðu PDF skrár eða myndir

Þegar þú ert búinn að hanna munstur getur þú vistað það sem PDF skrá til að dreifa því meðal vina og kunningja. Þú getur sett inn texta með nánari útskýringum á því hvernig á að prjóna ásamt skýringum á þeim táknum sem þú notaðir.

Þá getur þú einnig vistað JPG myndir af munstrinu þínu.

 


Handraðinn

Ef þú teiknar mynd eða munstur sem þú gætir notað aftur í annarri uppskrift, þá getur þú sett hana í handraðann. Handraðinn er listi, nokkurs konar gagnabanki, yfir myndir sem þú vilt geyma til að nota aftur.

 


Fyrir PC og Mac

KnitBird keyrir á hugbúnaði sem kallast Adobe AIR. Það þýðir að þú getur sett það upp jafnt á PC og Mac. Eina skilyrðið er að þú sért búinn að setja up Adobe AIR hugbúnaðinn.

 


Sjálfvirkar uppfærslur

Ef við lagfærum villu eða bætum einhverju nýju við KnitBird munt þú fá meldingu um það. Þér verður boðið að sækja nýju uppfærsluna og setja hana upp beint úr forritinu. Ef þú finnur villu eða finnst eitthvað hegða sér undarlega skaltu ekki hika við að hafa samband.

 


Kröfur til hugbúnaðar

  • Adobe AIR 1.5.3 eða nýrri útgáta
  • Windows 2000, XP, Vista eða 7
  • Mac OS X 10.4 eða nýrri útgáfa
  • Linux Fedora Core 12, Ubuntu 9.10, or openSUSE® 11.2
  • Nettenging (fyrir virkjun vörulykils og uppfærslur)

 


Hver erum við?

Við erum Trausti Dagsson og Lilý Erla Adamsdóttir. Hún elskar að prjóna og er að læra myndlist en hann forritar í frístundum og er að læra ritlist.